Næsta laugardag, þann 27. febrúar, mæta strákarnir okkar í Gettu Betur liði FSu í 8 liða úrslitum spurningakeppninnar. Keppnin fer fram í myndveri Útvarpshússins við Efstaleiti kl. 20:10 en mæting er fyrir FB-inga í skólann kl. 19:00.
Liðið okkar skipa þeir Jóhann Andri Kristjánsson, Sigurgeir Örn Sigurgeirsson og Þorvaldur Hauksson en þeir hafa staðið sig eins og hetjur í keppnunum hingað til.
Miðunum á keppnina var dreift í matsalnum fyrr í vikunni en aðeins 70 miðar voru í boði. Þið sem fenguð miða verðið að sjá til þess að miðinn sé notaður, þ.e. að ef þið af einhverjum ástæðum getið ekki mætt sjálf að láta þá einhvern annan fá miðann. Þeir sem ekki fengu miða geta fylgst með keppninni í beinni útsendingu á Rúv kl. 20:10.
Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 1998 sem við komumst í sjónvarpið í Gettu Betur svo við ætlumst til að stuðningsliðið verði upp á sitt besta! Trommur og önnur hljóðfæri eru þó bönnuð þar sem keppnin er sýnd í beinni útsendingu.
Áfram FB!

Þessi færsla var skifuð þann 24.02.10