Nú er framboð fyrir nemendaráð og nefndir skólaársins 2010-2011 í fullum gangi. Það eru þegar komnir þrír frambjóðendur í skemmtanastjórann, einn í varaformanninn og von á fleirum eftir helgi. Auk þess er fjöldinn allur búinn að bjóða sig fram í nefndir! Síðasti séns er að bjóða sig fram á mánudaginn kl. 12:30 en framboðsblöðin hanga á veggnum hjá miðasölunni (gamla nemendaráðsherberginu). Í hádegishlé á mánudaginn verða frambjóðendur síðan með tveggja mínútna ræður í matsalnum þar sem þeir ætla að kynna sig fyrir ykkur kæru NFB-ingar og segja ykkur afhverju þið ættuð að frekar að kjósa þá en einhvern annan:) Kosningarnar sjálfar fara fram á þriðjudag og miðvikudag (20. og 21. apríl) í gamla matsalnum milli klukkan 09:00 og 16:00. Fimmtudaginn 22. apríl (sumardaginn fyrsta) verður síðan kosningavaka og sumargleði á Glaumbar þar sem fáum niðurstöður úr kosningunum.

Þessi færsla var skifuð þann 16.04.10