Lög NFB
Almenn ákvæði
1.Grein Félagið heitir Nemendafélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti, skammstafað NFB.
2. Grein Lögheimili og varnarþing félagsins er að Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Austurbergi 5, 111 Reykjavík
3. Grein Þeir nemendur sem stunda nám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og hafa greitt nemendafélagsgjöld eru félagar NFB
4. Grein Félagið er meðlimur í Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF)
5. Grein Merki NFB skal vera tákn félagsins og skal vera notað sem slíkt þegar tækifæri er á því. Öll notkun á merki NFB sem að vanvirðir ýmind félagsins eða traust er með öllu óheimil.
Hlutverk félagsins er að efla félagslíf, félagsþroska og gæta hagsmuni félaga sinna og sjá um alla viðburði sem eru á vegum NFB. Bæta orðspor NFB og FB, auk þess að vinna að byggja upp FB á sem flestum sviðum.
Framkvæmdarstjórn
1. Grein Framkvæmdarstjórn fer með æðsta vald milli aðalfunda. Það sér um daglegan rekstur félagsins og gætir þess að farið sé eftir lögum NFB. Ekki er hægt að gera samninga fyrir hönd NFB nema með samþykki framkvæmdarstjórnar.
2. Grein Í framkvæmdarstjórn eiga sæti: Forseti, vara-forseti, skemmtanastjóri, markaðstjóri og meðstjórnandi.
3. Grein Framkvæmdarstjórn áskilur sér rétt til þess að víkja embættismönnum innan NFB úr stöðum sínum ef 85 mætingarskyldu á fundi er ekki fullnægt. Ef mæting er komin undir 50% er viðkomandi vikið úr nefnd. Framkvæmdarstjórn fær þann rétt að gefa nefndarmeðlim eina viðvörun ef hann er ekki að sinna skyldum sinum, annars má framkvæmdarstjórn víkja nefndaraðila úr nefnd.
4. Grein
4.1. Forseti
Forseti er oddamaður stjórnar og ábyrgðarmaður nemendafélagsins. Hann er tengiliður nemendafélags, skólastjórnar, talsmaður og fulltrúi nemenda innan sem utan skólans. Forseti situr í skólaráði, skólanefnd og félagsstarfsnefnd.
4.2. Vara-forseti
Vara forseti er staðgengill forseta. Hann er tengiliður framkvæmdarstjórnar og nefnda og starfar einnig sem trúnaðamaður nemenda. Honum ber að vernda hagsmuni nemenda. Vara forseti er ritari framkvæmdarstjórnar.
4.3. skemmtanastjóri
Skemmtanastjóri hefur yfirumsjón með öllum skemmtunum á vegum NFB, einnig er skemmtanastjóri sé formaður skemmtinefndar.
4.4. Markaðstjóri
Markaðstjóri hefur yfirumsjón með markaðsetningu viðburða og skemmtana nemendafélagsins. Markaðstjóri sér um útgáfu nemendakorta.
4.5. Meðstjórnandi
Hlutverk meðstjórnanda er ekki bundið, heldur tekur hann að sér ýmis verkefni sem Forseti eða Vara-forseti úthluta honum. Tilgangur meðstjórnanda er að dreifa álagi stjórnarmeðlima. Meðstjórnandi er formaður nýnemanefndar og ábyrgðamaður.
5. Grein Við brotthvarf úr embætti er það í verkahring framkvæmdarstjórnar að fylla í þá stöðu
Miðstjórn
1. Grein Í miðstjórn sitja allir formenn nefnda og meðlimir framkvæmdarstjórnar.
2. Grein. Miðstjórn fundar einu sinni í viku á svokölluðum FES fundum ásamt félagsmála og forvarnafulltúum.
3. Grein. Ef formaður nefndar forfallast á FES fund gengur vara-formaður nefndarinnar í hans stað á fundinum.
Nemendaráð
1. Grein Nemendaráð samanstendur af framkvæmdarstjórn, formönnum og félögum nefnda.
2. Grein Nemendaráð þjónar þeim tilgangi innan NFB að samhæfa starfsemi framkvæmdarstjórnar og nefnda.
3. Grein Nemendaráð skal halda fundi minnst einu sinni á önn.
4. Grein Öllum meðlimum nemendaráðs er hvenær sem er frjálst að óska eftir fundi með framkvæmdarstjórn.
Aðalfundur
1. Grein Aðalfundur er æðsta vald félagsins. Aðalfund skal halda eftir kosningar, allir meðlimir NFB hafa seturétt á aðalfundi ef viðkomandi hefur lokið að minnsta kosti einni önn, nema viðkomandi sé nýnemi sem hefur verið tekinn í nefnd eða gegnir öðru embætti.
2. Grein Formaður skal boða til aðalfundar með sannarlegum hætti, með minnst 2 vikna fyrir vara. Aðalfundur skal vera auglýstur á öllum miðlum NFB.
3. Grein Til þess að aðalfundur og/eða aukaaðalfundur sé löglegur skal helmingur nemendaráðs vera mættur.
4. Grein Lagatilbreytingatillögur skulu berast framkvæmdarstjórn tveimur dögum fyrir aðalfund. Á aðalfundi skulu einungis löglega framkomnar tillögur vera til umfjöllunar. Til að lagabreytingatillögur öðlist gildi þarf samþykki helmings fundarmanna.
Kosningar
1 Grein Kjörstjórn skal vera skipuð af framkvæmdarstjórn ár hvert. Tilgangur hennar er að sjá um umgjörð, skipulag og framkvæmd kosningar NFB. Kjörstjórn skal sjá um að kosningaúrslit séu gerð kunn í síðasta lagi 2 virkum skóladögum eftir að kjördegi lýkur.
2. Grein Kjörgengi í öllum framboðum innan NFB er háð því að frambjóðendur hafi greitt nemendafélagsgjöldin önnina sem kosning fer fram.
3. Grein Kjörgengi Forseta er háð því að frambjóðandi sé að minnsta kosti á 18. aldursári og hafi ekki verið sviptur sjálfræði. Einnig þarf frambjóðandi að vera með yfir 85 % mætingu á þeim tveim önnum sem líða áður kostningarnar fara fram.
4. Grein Fjórir skulu kosnir í hverja nefnd. Kjörgengi er háð því að frambjóðandinn hafi stundað nám við skólann í tvær annir og hafi greitt nemendafélagsgjöld önnina sem kosningar eru háðar.
5. Grein Sá sem hlýtur flest atkvæði í hverri nefnd er sjálfkjörinn formaður nefndarinnar.
6. Grein Framkvæmdarstjórn getur með meiri hluta atkvæða leyst nefndarmeðlimi frá stöðum séu þeir ekki að sinna skyldum sínum. Framkvæmdarstjórn gefur nefndarmeðlimi eina viðvörun áður en honum er vikið úr nefnd.
7. Grein Á haustönn skal hver nefnd taka inn að lágmarki einn nýnema á nýnemakvöldi.
8.Grein Leyfilegt er að bjóða sig fram í fleiri en eina nefnd, en ekki er heimilt að starfa í fleiri en einni á skólaári.
9. Grein Kjördagar skulu vera tveir, haldnir um miðjann apríl. Kosningar skulu vera leynilegar og bindandi.
10. Grein Ef einungis einn frambjóðandi býður sig fram til embættis, verður hægt að kjósa hvort hann eigi að þjóna því embætti. Frambjóðandi þarf að fá fleiri jákvæð heldur en neikvæð atkvæði til þess að hljóta embætti.
11. Grein Takist ekki að fylla stöðu á kjördegi skal nemendaráð auglýsa stöðuna lausa og skipa í hana í framhaldi af því.
Laun
1. Grein Meðlimir nemendaráð sem gegna lykilhlutverki í undirbúning og framkvæmd Árshátíðar NFB, fá fríann miða á Árshátíðina.
2. Grein Meðlimir framkvæmdarstjórn fá að fara inn á alla atburði/uppákomur á vegum NFB endurgjaldslaust. Gildir þetta hvort sem er að ræða böll eða aðrar uppákomur. Framkvæmdarstjórn hefur þann rétt á að veita nefndaraðila/um frítt inná viðburð ef að sá nefndaraðili hefur sinnt lykilhlutverki í undirbúning fyrir þann viðburð.
2.1 2. Grein fellur úr gildi hjá nemendaráðsmeðlimum sem geta ekki sýnt fram á 85 % mætingarskyldu.
3. Grein Félaginu er óheimilt að greiða laun til nemenda fyrir vinnu aðra en þá sem lögin kveða um nema það sé samþykkt á FES fundi og ef nemandi er ekki í NFB.
4. Grein Í lok hverrar vorannar eða lok starfsárs nemendaráðs hefur framkvæmdarstjórn leyfi til að fara út að borða á kostnað nemendafélagsins fyrir upphæð sem nemur 5.000 kr, á hvern framkvæmdarstjórnarmeðlim.
Viðburðir og miðasala
1. Grein
Miðar sem keyptir eru á viðburði á vegum Nemendafélags Fjölbrautaskólans í Breiðholti (NFB) eru almennt ekki endurgreiddir.
2. Grein
Þetta á við um alla gjaldskylda viðburði á vegum NFB, þar á meðal böll, árshátíðir og aðra sambærilega viðburði.
3. Grein
Með kaupum á miða á viðburð á vegum NFB samþykkir kaupandi þessa skilmála.
4. Grein
Ef viðburður fellur niður af hálfu NFB áskilur framkvæmdarstjórn sér rétt til að ákveða hvort endurgreiðsla fari fram eða hvort miði gildi á annan viðburð.
Sjóðir
1. Grein Nemendasjóður er myndaður af félagsgjöldum nemenda. Hann skal notaður til að standa undir kostnaði við hagsmunastörf og til að styrkja og fjármagna félagslíf skólans. Nemendasjóðurinn er í gæslu félagsmálafulltrúa NFB, forseta NFB og rekstrarstjóra FB
2. Grein Allt bókhald skal sent löggiltum endurskoðanda til yfirferðar.
Heiðursskjöl
1. Grein Tilgangur heiðursskjala NFB er að heiðra þá útskriftanemendur sem hafa skarað fram úr í félagslífi NFB á námsferli sínum. Nemendaráð tilnefnir 1-5 nemendur á hverri önn sem hafa unnið best að félagslífi félagsins. Skjölin skulu vera afhent af Forseta við útskrift.
Hagsmunaráð
1. Grein Tilgangur Hagsmunaráðs er að vernda og bæta hagsmuni nemenda skólans. Nemendur skólans eiga að vera upplýstir um Hagsmunaráð og vera með augljósar upplýsingar um hvernig á að hafa samband við ráðið. Nemendur hafa rétt á að bera kvartanir um skólann eða nemendafélagið til Hagsmunaráðs og ráðið á að reyna af sinni bestu getu að leysa sagt vandamál til að vernda hagsmuni nemenda. Hagsmunaráð ber að fara yfir lög nemendafélagsins og koma með tillögu að betrumbættum eða nýjum lögum þar sem það á við.
2. Grein Í Hagsmunaráði sitja formaður, varaformaður, lýðræðisfulltrúi og tveir hagsmunafulltrúar fyrir hvert svið innan skólans.
3. Grein Formaður hagsmunaráðs skal vera fundarstjóri á Hagsmunaráðs fundum og skal tala fyrir hönd allra hagsmunafulltrúa í öllum skólamálum. Hann er skyldur til að halda fund einu sinni í mánuði en verður að boða fundinn með minnst viku fyrirvara. Honum er kleift að boða neyðarfund ef það liggur á málefni fundarins.
4. Grein Vara-formaður hagsmunaráðs skal ávalt vera jafnfætis formanni í málum Hagsmunaráðs til að vera undirbúinn að taka við hvenær sem er. Hann skal skipuleggja hópefli fyrir ráðið og halda utan um fundargerð ráðsins.
5. Grein Lýðræðisfulltrúi stendur vörð um lýðræði innan veggja skólans og nemendafélagsins. Hefur seturétt í kosningaráði. Ef hann verður var við brot á lýðræði eða lögbrot skal fara beint með það til Skólaráðs, formans nemendafélags og Sífara.
6. Grein Hagsmunafulltrúar skulu vera auglýstir og vel þekktir sem fulltrúar síns sviðs. Taka alltaf við fyrirspurnum og viðtölum við nemendur og skulu bera þær fyrirspurnir upp til Hagsmunaráðs og ef liggur á skal fara með þær beint til formanns og boða neyðarfund Hagsmunaráðs.
7. Grein Formaður og Sífari nemendafélags hafa einnig setu-og kosningarétt á fundum Hagsmunaráðs.
8. Grein Hagsmunaráð skal heyra undir formanni nemendafélags og skila inn fundarskýrslum til hans eigi seinna en þremur dögum eftir fundarslit. Hagsmunaráð gegnir engum öðrum skyldum en að vernda og bæta hagsmuni nemenda.
9. Grein Hagsmunaráð skal miðla þekkingu sinni frá fyrri stjórn þegar ný stjórn nemendaráðs tekur við. Hagsmunaráð skal vera kosið í kosningarviku NFB. Fráfarandi stjórn skal þá þjálfa nýkosna stjórn og hafa hana með á næstu fundum ráðsins til að tryggja áframhaldandi öflugt starf. Hagsmunaráð situr í tvær annir og í enda seinni annar skal það þjálfa nýkjörna stjórn sem tekur við í byrjun sumars. Kosið skal í formann,varaformann, lýðræðisfulltrúa af öllum nemendum skólans en aðeins skal vera kosið um hagsmunafulltrúa námssviðs innan sviðsins.
Lög
1 Grein Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi eða á aukaaðalfundi.
2. Grein Lög NFB skulu vera kynnt fyrir nýju Nemendaráði og formönnum nefnda á fyrsta FES fundi haustannar.
3. Grein NFB verður ekki lagt niður nema með samþykki á tveimur löglega boðuðum aðalfundum í röð, þá með 4/5 hlutum greiddra atkvæða eða meira í bæði skiptin. Atkvæðagreiðsla skal vera skrifleg. Fyrri aðalfundur mun ákveða afdrif þegna NFB, en sú ákvörðun mun þó ekki taka gildi fyrr en á seinni aðalfundi, samþykki sá fundur einnig slit félagsins. Lagt er til að fundargerðir og önnur gögn NFB sem ekki flokkast undir trúnaðarmál verði sett í varðveislu á Landsbókasafni. Skjölum varðandi trúnaðarmál ber að eyða í endurvinnslu.
4. Grein Lög þessi öðlast þegar gildi og eru önnur lög félagsins þar með úr gildi nema annað sé tekið fram sérstaklega.
5. Grein. Framkvæmdarstjórn áskilur sér rétt að laga málfar og stafsetningu þessara laga án þess að boða til aðalfundar.
Nefndarlög
1 Grein Fjórir meðlimir eru kostnir í hverja nefnd, nema annað komi fram. Hverri nefnd er skyldugt að velja að lágmarki einn nýnema inn í nefndina. (nema í sértökum tilfellum).
2. Grein Sá meðlimur sem fær flest atkvæði í kosningum starfar sem formaður, nema sá hinn sami treystir sér ekki til. Ef svo er mun vara-formaður taka við. Vara-formaður nefndarinnar er kjörinn af meðlimum nefndarinnar. Á fyrsta fundi hennar.
3.Grein Formenn nefnda eru skyldugir til þess að upplýsa framkvæmdarstjórn um starfsemi nefndarinnar.
Skemmtinefnd.
Skemmtinefnd sér um skipulagningu og framkvæmd viðburða á vegum NFB. Þ.m.t. Árshátíð NFB og önnur böll.
Leiklistarfélagið Aristófanes
Leiklistarfélagið Aristófanes skal sjá um að halda uppi fjölbreyttri leiklistastarfi innan NFB.
Málfundarfélagið Gróa Sér um Morfís og Gettu betur.
Íþróttanefnd
Íþróttanefnd sér um að innan skólans sé sterk og fjölþætt íþróttastarfsemi. Íþróttanefnd sér um alla íþróttaviðburði á vegum nfb.
Ljósmynda- og Vídeonefnd
Ljósmynda- og Vídeonefnd Sér um að taka myndir á viðburðum NFB. Nefndin má senda einn til tvo fulltrúa á hvern viðburð NFB endurgjaldslaust. Ljósmyndanefnd skal skila inn ljósmyndum innan viku eftir viðburð, Vídjónefnd ber ábyrgð á tækjum og efni videonefndar. Vídjónefnd skal sjá um upptökur á því helsta sem gerist í félagslífi NFB. Tæki þau og fylgihlutir sem teljast til videonefndar skulu eingöngu notuð af nefndarmeðlimum. Óski hinsvegar einhver eftir afnotum af aðstöðu eða tækjum videonefndar utan hefðbundinna verkefna, þarf samþykki nemendaráðs, sem er tekið í samráði við formann vídjónefndar. Með öllu er óheimilt að lána út efni sem vídjónefnd hefur til umráða.
Ritnefnd- og auglýsinganefnd
þau nefndir vinna saman að sjá um útgáfu skólablaðs NFB, auk annara bæklinga.
Nýnemanefnd
Nefndin er skipuð af nýnemum sem bjóða sig fram á nýnemakvöldi. Í nýnemanefnd mega vera allt að 12 manns að meðtöldum formanni. Formaður nýnemanefndarinnar er meðstjórnandi framkvæmdastjórnar. Markmið nefndarinnar er að þjálfa nýnema til þess að starfa innan nemendaráðs með því að aðstoða ýmsar nefndir við tilfallandi verkefni.
Styrktarfélagið
Styrktarfélagið hefur verið lagt niður og hver nefnd sér um sín eigin styrktarmál
Vefráð Formaður
Hefur verið lagt niður, þeir sem eru í stjórn og formenn nefnda taka að sér að vera umsjón yfir NFB samfélagsmiðlum
Tónlistarnefnd
Tónlistarnefnd sér um alla viðburði NFB tengdum tónlist.
Nördanefnd
Nefndin sér um að halda LAN NFB, ásamt spila og bíókvöldum.
Listanefnd
Listanefnd sér um að halda uppi listamenningu skólans.
Miðasölustjóri
Miðasölustjóri hefur verið lagt niður því embættið, en hver nefnd sér um miðasölu á sínum viðburðum, ef þess þarf.
Sífari
Sífari situr í stjórn SÍF. Hann sér um öll samskipti SÍF við NFB og sér um það að allir meðlimir NFB séu meðvitaðir um tilgang SÍF.